Vilja fá fund með Mourinho

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Stuðningsmenn Manchester United hafa boðið knattspyrnustjórann José Mourinho að hitta þá á fundi til að ræða andrúmsloftið á Old Trafford en Mourinho hefur ekki verið par sáttur við stuðninginn sem liðið hefur fengið á heimaleikjum liðsins í undanförnum leikjum.

Mourinho lét óánægju sína í ljós til stuðningsmanna United eftir leikinn gegn Tottenham um síðustu helgi þar sem hann sussaði á þá og í leikskránni fyrir leikinn gegn Benfica í Meistaradeildinni sagðist hann vona að þeir gætu notið leiksins meira heldur en í leiknum við Tottenham.

Þá hefur stjórinn skotið á stuðningsmennina fyrir skort á stuðningi þeirra við framherjann Romelu Lukaku og segir ósanngjarnt að þeir standi ekki betur við bakið á Belganum stóra og stæðilega sem hefur nú spilað sex leiki í röð án þess að skora.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert