Wenger sleppur við refsingu

Wenger lætur óánægju sína með dómara leiksins í ljós.
Wenger lætur óánægju sína með dómara leiksins í ljós. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal fær ekki refsingu fyrir skot sitt á Raheem Sterling, leikmann Manchester City. Wenger sakaði Sterling um leikaraskap þegar hann vann vítaspyrnu fyrir Manchester City í 3:1-sigrinum á Arsenal um helgina. 

Nacho Monreal virtist brjóta á Sterling innan teigs, en Wenger var ekki sáttur við dóminn og sagði að Sterling væri góður að dýfa sér. „Við vitum að Sterling er góður að dýfa sér og hann vann þessa vítaspyrnu vel," sagði Wenger í samtali við BBC eftir leik.

Samkvæmt heimildum Sky Sports fór Wenger ekki yfir mörkin með ummælum sínum, en hann var ansi nærri því. Hann sleppur hins vegar við refsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert