Salah orðinn markahæstur

Mohamed Salah fagnar marki gegn Southampton í gær.
Mohamed Salah fagnar marki gegn Southampton í gær. AFP

Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, er orðinn einn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Salah skoraði tvö mörk í 3:0-sigri Liverpool gegn Southampton í gær en þessi frábæri leikmaður sem kom til Liverpool í sumar hefur skorað samtals 14 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og það í 18 leikjum.

Markahæstu leikmenn:

9 - Mohamed Salah, Liverpool
8 - Alvaro Morata, Chelsea
8 - Sergio Agüero, Manchester City
8 - Gabriel Jesus, Manchester City
8 - Harry Kane, Tottenham
8 - Romelu Lukaku, Manchester United

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert