Breska lögreglan hefur beðið stuðningsmenn West Ham knattspyrnuliðsins að hætta að hringja í neyðarlínuna til þess að kvarta yfir gengi liðsins.
West Ham tapaði í gær 2-0 fyrir Watford en leikurinn var sá fyrsti sem liðið spilar eftir að David Moyes tók við sem þjálfari West Ham. Einhverjir stuðningsmenn West Ham hafa gengið of langt í sorg sinni að mati lögreglunnar og hefur lögreglan í Essex beðið þá um að hætta að hringja í neyðarlínuna, 999, og kvarta yfir lélegri frammistöðu liðsins.
Lögreglan skrifar á Twitter að það sé ekki ásættanlegt að hringja í neyðarlínuna þó svo að West Ham hafi tapað enn einu sinni og þið vitið ekki hvað þið eigið að gera í málinu. Það er algjör eyðsla á tíma okkar hjá lögreglunni.
Á meðaná leiknum stóð í gær mátti heyra stuðningsmenn söngla: „rekið stjórnina“ á sama tíma og liðið fékk á sig tvö mörk. West Ham er í 18. sæti af 20. Aðeins Swansea og Crystal Palace hefur gengið verr í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
West Ham tekur á móti Leicester á föstudag en það verður fyrsti heimaleikur liðsins eftir að Moyes var ráðinn knattspyrnustjóri West Ham.