Jafntefli hjá Brighton og Stoke

Leikmenn Brighton fagna Jose Izquierdo eftir að hann skoraði jöfnunarmarkið.
Leikmenn Brighton fagna Jose Izquierdo eftir að hann skoraði jöfnunarmarkið. AFP

Brighton og Stoke skildu jöfn í lokaleik 12. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var nokkuð fjörugur þótt ekki tækist öðru liðinu að sigra. 

Eric Maxim Choupo-Moting kom Stoke yfir á 28. mínútu en Pascal Gross jafnaði þremur mínútum fyrir hlé. Kurt Zouma kom Stoke aftur yfir á 45. mínútu og Stoke var því yfir að loknum fyrri hálfleik. Jose Izquierdo skoraði síðasta mark leiksins á 60. mínútu og jafnaði þá fyrir Brighton 2:2.

Brighton er áfram í efri hluta deildarinnar en liðið er í 9. sæti með 16 stig. Stoke er með 13 stig eins og Leicester, Bournemouth og Southampton. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert