Gylfi Þór ekki í hóp Everton

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Everton sem tekur á móti ítalska liðinu Atalanta í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

David Unsworth, starfandi stjóri Everton, ákvað að hvíla Gylfa, Leighton Baines og Phil Jagielka fyrir leik Everton gegn Southampton á sunnudaginn.

Everton á ekki möguleika á að komast áfram en liðið er enn án sigurs í riðlinum en í kvöld spilar Everton fimmta leik sinn í riðlakeppninni.

Wayne Rooney leikur í fremstu víglínu Everton í kvöld ásamt Kevin Mirallas og Sandro Ramirez.

Viðar Örn Kjartansson er í byrjunaliði Maccabi Tel Aviv sem leikur gegn Slavia Prag á heimavelli. Líkt og Everton á Maccabi Tel Aviv ekki möguleika á að komast áfram.

Arnór Ingvi Traustason er ekki í leikmannahópi gríska liðsins AEK sem tekur á móti Rijeka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert