Salah markahæstur á nýjan leik

Mohamed Salah fagnar marki sínu fyrir Liverpool gegn Everton í …
Mohamed Salah fagnar marki sínu fyrir Liverpool gegn Everton í leik liðanna í dag. AFP

Mohamed Salah, framherji Liverpool, skaust upp á topp listans yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla með marki sínu í 1:1-jafntefli Liverpool gegn Everton fyrr í dag.

Harry Kane, sóknarmaður Tottenham Hotspur, jafnaði Salah á toppi listans með því að skora tvö mörk í öruggum 5:1-sigri Tottenham Hotspur gegn Stoke City í gær.

Salah hefur nú skorað 13 deildarmörk á yfirstandandi leiktíð og hefur skorað einu marki meira en Kane. Raheem Sterling og Sergio Agüero, leikmenn Manchester City, og Álvaro Morata, leikmaður Chelsea, koma síðan næstir með níu mörk hver.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert