Framherjinn skrautlegi, Peter Crouch, var að eigin sögn nálægt því að drepa fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Liverpool, Dirk Kuyt. Leikmenn Liverpool fóru þá í go-kart stuttu fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fótbolta sem fram fór í Grikklandi.
„Ég keyrði um á miklum hraða og sá Xabi Alonso og Dirk Kuyt fyrir framan mig. Ég ætlaði að bremsa en fann svo að bremsurnar virkuðu ekki, svo ég setti stefnuna á Kuyt, því Alonso var verðmætari,“ sagði Crouch léttur.
„Sem betur fer hoppaði Kuyt, svo ég fór á milli lappana á honum. Þetta var stórhættulegt,“ bætti framherjinn hávaxni við.