Má ekki tapa þessum leik (myndskeið)

Ian Wright lék með Arsenal um átta ára skeið og þekkir því vel hversu mikilvægur Norður-Lundúnaslagurinn gegn Tottenham Hotspur er fyrir liðið og stuðningsmenn þess.

Hann seg­ir að það mik­il­væg­asta sem þurfi að hafa í huga þegar kem­ur að þess­ari viður­eign sé að þú meg­ir ein­fald­lega ekki tapa leikn­um. Slíkt sé óhugs­andi.

Wright skoraði sjálfur fimm mörk í 10 leikjum í Norður-Lundúnaslagnum í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham hefur haft undirtökin í viðureigninni undanfarin ár þar sem liðið hefur unnið tvo síðustu leiki í ensku úrvalsdeildinni og í leikjunum tveimur þar á undan skildu liðin jöfn. Arsenal vann Tottenham síðast í deildinni í desember árið 2018.

Wright ræðir nán­ar um viður­eign­ina í spilaranum hér fyrir ofan og hvernig hann upp­lifði hana sem leikmaður Arsenal á 10. ára­tug síðustu ald­ar.

Arsenal tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn klukkan 16.30. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Símanum Sport og hefst upphitun klukkan 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert