Hamilton fljótastur í Hungaroring

Lewis Hamilton á fleygiferð á of Mercedesbílnum í Búdapest í …
Lewis Hamilton á fleygiferð á of Mercedesbílnum í Búdapest í morgun. mbl.is/afp

Lewis Hamilton hjá Mercedes ók allra manna hraðast á fyrri æfingu dagsins í Búdapest, en ungverski kappaksturinn fer fram á sunnudag í Hungaroring, sem er skammt utan borgarinnar.

Í öðru sæti á lista yfir hröðustu hringi var liðsfélagi Hamiltons, Nico Rosberg, en á þeim munaði 0,138 sekúndum.

Í næstu sætum urðu Kimi Räikkönen og Fernando Alonso hjá Ferrari en Kimi var rúmleag 0,4 sekúndum lengur með hringinn en Rosberg og svipað bil var svo í Alonso.

Í sætum fimm til tíu urðu svo Sebastian Vettel hjá Red Bull, Kevin Magnussen hjá McLaren, Jean-Eric Vergne hjá Toro Rosso, Daniel Ricciardco hjá Red Bull, Jenson Button hjá McLaren og Felipe Massa hjá Williams, en hann var 2,1 sekúndu lengur með hringinn en Hamilton. Á Alonso og Vettel munaði 0,4 sekúndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert