Spyrill í kröppum dansi

Lewis Hamilton sá til þess að spurningarnar yrðu ekki mjög …
Lewis Hamilton sá til þess að spurningarnar yrðu ekki mjög margar. mbl.is/afp

Blaðamaður þarf í starfi sínu á stundum að glíma við erfiðar aðstæður og jafn vel leggja sig í hættu.

Segja má að það eigi ágætlega við breska leikarann James Corden sem brá sér í gervi blaðamanns og freistaði þess að taka viðtal við formúluþórinn Lewis Hamilton. Og það á fleygiferð í sportbíl um Rockinghambrautina í Englandi.

Með þessu uppátæki skyldi kannað hversu mörgum spurningum hann næði á einum hring í brautinni. Árangurinn kemur í ljós í eftirfarandi myndskeiði en ljóst er að Hamilton skemmtir sér konunglega undir þessum kringumstæðum:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert