Rosberg fljótastur í Spa

Nico Rosberg sposkur á svip á blaðamannafundi í Spa í …
Nico Rosberg sposkur á svip á blaðamannafundi í Spa í gær. mbl.is/afp

Nico Rosberg hjá Mercedes ók hraðast á fyrstu æfingu keppnishelgarinnar í Spa í Belgíu í morgun.

Var hann 97 þúsundustu úr sekúndu fljótari með hringinn en liðsfélagi hans Lewis Hamilton. Fernando Alonso á Ferrari setti þriðja besta tímann, 0,1 sekúndu á eftir Hamilton.

Í sætum fjögur til tíu urðu, í þessari röð, Jenson Button hjá McLaren, Kimi Räikkönen hjá Ferrari, Sergio Perez hjá Force India, Kevin Magnussen hjá McLaren, Nico Hülkenberg hjá Force India, Daniel Ricciardo hjá Red Bull og Valtteri Bottas hjá Williams.

Sebastian Vettel átti aðeins ellefta besta hringinn og  Felipe Massa hjá Williams þann fimmtánda. Vettel varð að hætta akstri fyrr en til stóð vegna elds í útblástursgreinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert