Button tekur út víti

Button á ferð á McLarenbílnum í síðasta móti, rússneska kappakstrinum …
Button á ferð á McLarenbílnum í síðasta móti, rússneska kappakstrinum í Sotsjí. mbl.is/afp

Jenson Button þarf að sæta afturfærslu á rásmarkinu í Austin um helgina um fimm sæti vegna gírkassaskipta.

Samkvæmt reglum formúlu-1 verða ökumenn að brúka sama gírkassann sex mót í röð. Víki þeir út af því hefur það sjálfkrafa í för með sér afturfærslu um fimm sæti.

Þess þarf Button nú að gjalda í bandaríska kappakstrinum á sunnudag þar sem nauðsynlegt reyndist að skipta um gírkassa í bíls hans vegna bilunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert