Nico Rosberg ók hraðast á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Abu Dhabi og var rúmum 0,3 sekúndum fljótari með hringinn en liðsfélaginn Lewis Hamilton. Þriðja besta tíma náði Felipe Massa hjá Williams en hann var sekúndu á eftir tíma Rosberg.
Á hröðustu hringjunum ók Hamilton fyrstu tvo kaflana af þremur hraðar en Rosberg en tapaði niður ferðinni á lokakaflanum.
Fernando Alonso hjá Ferrari setti fjórða besta tímann, Sebastian Vettel hjá Red Bull þann fimmta besta og Jenson Button hjá McLaren þann sjötta.
Í sætum sjö til tíu urðu svo Daniel Ricciardo hjá Red Bull, Valtteri Bottas hjá Williams, Daniil Kvyat hjá Toro Rosso og Kimi Räikkönen hjá Ferrari, sem var 0,4 sekúndum lengur í förum en félagi hans Alonso sem sparaði vél sína fyrir kappaksturinn og ók aðeins átta hringi meðan aðrir óku kringum tuttugu.