Rosberg fljótastur á seinni æfingu

Nico Rosberg á ferð í brakandi sólskini í Austin í …
Nico Rosberg á ferð í brakandi sólskini í Austin í dag. AFP

Nico Rosberg setti besta tíma dagsins í Austin í Texas er hann ók hraðast á seinni æfingunni. Annar á lista yfir hröðustu hringi varð Daniel Ricciardo hjá Red Bull og þriðji Lewis Hamilton, liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes.

Rosberg ók best á 1:37,358 mínútum, Ricciardo á 1:37,552 og Hamilton á 1:37,649 mín.Þeir, eins og allir 10 fremstu brúkuðu mýkstu dekkjagerðirnar er þeir reyndu á hraða bíla sinna.

Í sætum fjögur til tíu - í þessari röð - urðu Sebastian Vettel hjá Ferrari, Max Verstappen hjá Red Bull, Nico Hülkenberg og Sergio Perez hjá Force India, Jenson Button og Fernando Alonso hjá McLaren og loks Kimi Räikkönen hjá Ferrari.

Räikkönen rann margsinnis út úr brautinni og kenndi ójafnvægi í bílnum um í talstöð sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert