Ricciardo fljótastur

Daniel Ricciardo hjá Red Bull ók hraðast á fyrstu æfingu keppnishelgarinnar í Singapúr. Liðsfélagi hans Max Verstappen átti þriðja besta tímann, en á milli þeirra varð Sebastian  Vettel hjá Ferrari.

Tíunda úr sekúndu munaði á Ricciardo og Vettel og einnig á þeim síðarnefnda og Verstappen.

Lewis Hamilton ók hraðast Mercedesmanna og setti fjórða besta tímann, en var 0,3 sekúndum lengur með hringinn en Verstappen. 

Í sætum fimm til tíu urðu - í þessari röð - Sergio  Perez á Force India, Valtteri  Bottas á Mercedes,  Kimi Räikkönen á Ferrari, Fernando Alonso á McLaren, Nico Hülkenberg á Renault og Daniil Kvyat á Toro Rosso.

Þess má geta að einungis 25 þúsundustu úr sekúndu munaði á þeim Räikkönen og Alonso og var sá síðarnefndi 1,2 sekúndum lengur í förum en Ricciardo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert