Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður og leikmaður Barcelona, mun taka þátt í góðgerðarleik í Malaga á morgun. Á heimasíðu Barcelona er sagt frá þessu. Margir þekktir knattspyrnumenn taka þátt í þessum góðgerðarleik sem er gegn fátækt í heiminum. Þarna mætast úrvalsliðs Ronaldos og Zidanes en um 45 leikmenn verða í þessum liðum á mánudaginn. Eftir leikinn mun Eiður Smári halda til Barcelona á ný til æfinga með liðinu að því er segir á heimasíðu félagsins.