Knattspyrnumaðurinn Gunnar Kristjánsson er genginn til liðs við KR á nýjan leik. Gunnar hefur leikið með Víkingi undanfarin tvö ár en var þar áður í KR þar sem hann er uppalinn. Á heimasíðu KR kemur fram að Gunnar hafi gert samning við vesturbæjarliðið sem gildir út árið 2010.
Gunnar er 21 árs gamall miðju- og sóknarmaður sem kom við sögu í 17 leikjum Víkings í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim 3 mörk. Hann hefur leikið 28 leiki með KR í efstu deild og þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðunum.