Jose Mourinho þjálfari Ítalíumeistara Inter í knattspyrnu framlengdi í gær samningi sinn við Mílanóliðið og er nú samningsbundinn því til ársins 2012. Portúgalinn tók við þjálfun Inter í júní í fyrra og undir hans stjórn varð liðið meistari í vor.
Mourinho, sem er 46 ára gamall, á glæsilegan þjálfaraferil. Hann gerði Porto að portúgölskum meisturum og vann Meistaradeildina með því, Chelsea varð tvívegis enskur meistari undir hans stjórn og Inter hafði tögl og hagldir í ítölsku A-deildinni á leiktíðinni.