Knattspyrnuþjálfarinn Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska meistaraliðsins HB. Netmiðilinn fotbolti.net greindi frá þessu en tilkynnt var um ráðningu Kristjáns á fréttamannafundi hjá HB nú í morgun. Kristján, sem hætti sem þjálfari Keflavíkur eftir tímabilið í haust eftir fimm ára starf, gerði tveggja ára samning við HB.