Stelpurnar lögðu Spánverja í Rússlandi

Blikastúlkur skoruðu í Rússlandi í dag.
Blikastúlkur skoruðu í Rússlandi í dag. mbl.is/Golli

Íslenska landsliðið skipað 19 ára og yngri stúlkum sigraði Spánverja 3:2 í fyrsta leik sínum í milliriðli EM, en leikið er í Rússlandi.

Spánvarjar komust yfir á 9. mínútu en Berglind Þorvaldsdóttir úr Breiðabliki jafnaði metin mínútu síðar. Spánverjar komust öðru sinni yfir á 39. mínútu og þannig var staðan í leikhléi.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, sem einnig er úr Breiðabliki, skoraði síðan tvívegis í síðari hálfleik, fyrst á 53. mínútu og síðan á þeirri 77. og þar við sat.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka