Óvænt tap kostaði Ísland EM-sætið

U19 ára liðið á æfingu í Sochi.
U19 ára liðið á æfingu í Sochi.

Íslenska U19 ára stúlknalandsliðið nýtti ekki gullið tækifæri til að komast í úrslitakeppni EM í knattspyrnu þegar það tapaði óvænt fyrir Tékkum, 1:2, í Sochi í Rússlandi í dag.

Fyrir lokaumferðina í dag lá möguleiki Íslands á efsta sætinu í milliriðlinum í því að Spánn myndi vinna Rússland, með 1:0 og engri annarri markatölu. Þau draumaúrslit urðu að veruleika, Spánn vann leikinn gegn Rússlandi 1:0, en leikirnir tveir fóru fram á sama tíma.

Tékkneska liðið virtist eiga að vera því íslenska auðveld bráð eftir að hafa tapað 0:6 fyrir Rússum og 0:5 fyrir Spánverjum. Ísland var búið að sigra Spán 3:2 og tapa 0:1 fyrir Rússlandi.

Tékkar náðu hinsvegar forystunni á 18. mínútu þegar Kozárova skoraði og hún var aftur á ferðinni í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Strax á þriðju mínútu síðari hálfleiks skoraði Katrín Ásbjörnsdóttir, 2:1, en nær komst íslenska liðið ekki og varð að sætta sig við tap.

Spánn vann þar með riðilinn með 6 stig, Rússland fékk 6 stig, Ísland 3 stig og Tékkland 3 stig. Spánverjar fara í 8-liða úrslitin og Rússar eiga enn möguleika en eitt lið sem nær bestum sæti í öðru sæti í milliriðli fer í lokakeppnina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert