Lagerbäck: Reynir á leikmennina

Lars Lagerbäck á landsliðsæfingu. stækka

Lars Lagerbäck á landsliðsæfingu. mbl.is/Golli

Karlalandsliðið í knattspyrnu býr sig undir vináttulandsleik gegn Japan sem fer fram í Osaka klukkan 10.20 á föstudagsmorguninn að íslenskum tíma. Lars Lagerbäck stjórnar íslenska landsliðinu í fyrsta skipti og teflir nær eingöngu fram leikmönnum liða á Norðurlöndum, gegn japönsku liði sem er nær eingöngu skipað leikmönnum japanskra liða.

Á vef KSÍ er viðtal við Lagerbäck þar sem segir m.a. að það sér frábært að geta skoðað hátt í 40 leikmenn í tveimur vináttuleikjum en næsta miðvikudag verður hann með allt annan leikmannahóp í landsleik í Svartfjallalandi.

Hér má sjá hópinn sem leikur í Japan, en ein breyting varð á honum því Halldór Orri Björnsson fór í stað Theódórs Elmars Bjarnasonar sem sleit krossband í hné um síðustu helgi.

Hópurinn í Japan.

Viðtalið fer hér á eftir:

„Þetta er auðvitað fyrsti leikurinn minn með liðið, fyrsti vináttuleikurinn. Ég vonast fyrst og fremst eftir góðri frammistöðu, en úrslit leiksins eru líka mikilvæg, þó þetta sé vináttuleikur er alltaf mikilvægt að reyna að ná góðum úrslitum, vonandi sigri. Ég vonast til að halda áfram með þá vinnu sem við byrjuðum á í æfingabúðunum á Íslandi í janúar, sjá hvernig leikmennirnir bregðast við því sem við höfum lagt upp með, sjá þá spila eins og við viljum að þeir spili.

Allir leikmennirnir sem eru í þessum tveimur hópum, gegn Japan og Svartfjallalandi, eiga jafn mikinn möguleika í framtíðinni. Hér geta þeir sýnt hvers þeir eru megnugir. Þess vegna er frábært fyrir mig að geta skoðað hátt í 40 leikmenn, enda er það frekar óvenjulegt að vera með tvo algjörlega aðskilda hópa leikmanna í tvo vináttuleiki með svo stuttu millibili.

Bæði liðin sem við erum að fara að spila við eru mjög sterk, sem er gott, því maður sér alltaf best úr hverju leikmenn eru gerðir þegar þeir lenda í erfiðum aðstæðum. Það var líka gott á vissan hátt að spila vináttuleiki þar sem langs ferðalags er krafist, því það reynir líka á leikmennina, álag utan vallar, þá sést líka hvernig menn höndla það álag og hvort það hafi áhrif á frammistöðu. Þessir tveir leikir eru flott tækifæri fyrir mig til að sjá skapgerð leikmanna.“

Hvað veit Lars um japanska liðið?

„Þeir munu bara nota leikmenn sem leika í Japan, þannig að þarna verða einhverjir leikmenn að spila sinn fyrsta landsleik. Mér skilst að annars væru milli 8 og 10 leikmenn í hópnum sem leika með félagsliðum utan japans. Japanska deildin er sterk. Þó að menn telji liðin ólík á velli og með ólíkan leikstíl, þá er í raun ekki mikill munur á leikaðferðum landslið í heiminum í dag. Það er kannski hægt að sjá ákveðinn mun á leikmönnum milli þjóða, Japanir eru kannski ekki stórir og sterkir líkamlega, en alveg gríðarlega vinnusamir og snöggir leikmenn, hlaupa mjög mikið.“

Lars hefur ekki ákveðið hvaða leikmaður muni bera fyrirliðabandið í leiknum við Japan, en málefni fyrirliða voru aðeins rædd á fundi liðsins í morgun og hafði þjálfarinn reyndi þetta að segja:

„Fyrirliði verður að njóta virðingar í leikmannahópnum, vera leiðtogi innan vallar sem utan. Inni á vellinum þarf hann að geta drifið leikmenn áfram. Hann þarf alltaf að sýna 100% fagmennsku, vera fyrirmynd annarra. Hann ætti jafnframt að vera andlit liðsins út á við og koma fram sem fulltrúi liðsins.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí


finnur.is