Tvö dramatísk mörk í Meistaradeildinni

Valentin Stocker leikmaður Basel fagnar marki sínu í kvöld. stækka

Valentin Stocker leikmaður Basel fagnar marki sínu í kvöld. Reuters

Basel hafði betur gegn FC Bayern 1:0 í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld en liðin áttust við í Basel. Sigurmarkið kom á 85. mínútu eftir frekar tíðindalítinn seinni hálfleik, sérstaklega af hálfu heimamanna. Markið sem Valentin Stocker skoraði gæti reynst Basel afar mikilvægt í seinni leiknum í Þýskalandi. Fari svo að Basel nái að lauma inn marki þar, þarf Bayern að skora þrjú mörk eða vinna með tveggja marka mun.

Basel átti fjölmörg færi í fyrri hálfleik og meðal annars skot í þverslánna. Bayern var meira með boltann og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum en Basel gerði það sem skipti máli eða að skora.

Sömu sögu er að segja frá Frakklandi en þar var dramatíkin enn meiri. Andre Ayew skoraði sigurmark Marseille gegn Inter þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma, 1:0. Inter á enn eftir að finna netmöskvana frá því 1. febrúar og slæmu tíðindin fyrir Claudio Ranieri stjóra Inter, hrannast upp.

Marseille er, eins og Basel, í ágætri stöðu fyrir seinni viðureignina í Mílan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí


finnur.is