Potsdam, lið markadrottningarinnar Margrétar Láru Viðarsdóttur, varð í dag Þýskalandsmeistari í knattspyrnu fjórða árið í röð er liðið vann stórsigur á botnliði Leipzig, 8:0, í lokaumferðinni.
Margrét Lára skoraði sjöunda mark meistaranna í dag eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Þetta er í sjötta sinn sem Potsdam verður Þýskalandsmeistari en liðið vann deildina fyrst árið 2004.