Kuyt til Fenerbache

Dirk Kuyt.
Dirk Kuyt. Reuters

Tyrkneska knattspyrnuliðið Fenerbache greinir frá því á vef sínum í dag að það hafi gert þriggja ára samning við hollenska sóknarmanninn Dirk Kuyt sem leikið hefur með Liverpool undanfarin ár.

Kuyt er 31 árs gamall og hefur leikið með Liverpool frá árinu 2006. Hann lék 207 leiki með liðinu í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 51 mark. Á nýliðnu tímabili var Kuyt töluvert utan liðsins en hefur átt fast sæti í hollenska landsliðinu og verður með því á EM sem hefst um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert