Lars Olsen, þjálfari Færeyja, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Íslandi í vináttuleik á Laugardalsvelli klukkan 19.45. Fjórir Íslandsvinir eru í byrjunarliðinu.
Jónas Tór Næs, leikmaður Vals, og Pól Jóhannus Justiniussen, fyrrverandi leikmaður Vals eru í vörn Færeyja, Fróði Benjaminsen, fyrrverandi leikmaður Fram, er á miðjunni og kantmaðurinn skemmtilegi sem lék lengi með Keflavík, Símun Samuelsen, er í sókn færeyska liðsins.
Byrjunarlið Færeyja:
Jákup Mikkelsen (M); Jónas Þór Næs, Rógvi Baldvinsson, Odmar Færø, Pól Jóhannus Justinussen; Fróði Benjaminsen, Hallur Hansson, Christian Lamhauge Holst; Daniel Udsen, Símun Edmundsson, Símun Samuelsen.