Gunnar með þrennu og er næstmarkahæstur

Gunnar Heiðar í leik með Norrköping.
Gunnar Heiðar í leik með Norrköping. Ljósmynd/ifknorrkoping.se

Gunnar Heiðar Þorvaldsson var á skotskónum með liði Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Gunnar skoraði þrennu þegar Norrköping burstaði Sundsvall á útivelli, 4:0.

Gunnar hefur þar með skorað 16 mörk í deildinni er næstmarkahæstur. Gunnar lék allan tímann og það gerði Ari Freyr Skúlason hjá Sundsvall en Jón Guðni Fjóluson lék síðustu 20 mínúturnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert