Bale tryggði Real Madrid bikarinn

Gareth Bale er hér að skora sigurmarkið.
Gareth Bale er hér að skora sigurmarkið. AFP

Gareth Bale sá um að tryggja Real Madrid sigur í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld en Walesverjinn frábæri skoraði sigurmarkið í 2:1 sigri gegn erkifjendunum í Barcelona á Mestalla vellinum í Valencia.

Real Madrid náði forystunni á 11. mínútu með marki frá Angel Di Maria en Marc Bartra jafnaði metin með góðu skallamarki á 67. mínútum. Fimm mínútum fyrir leikslok stakk svo Bale Bartra af og skoraði framhjá Pinto. Þetta reyndist sigurmarkið og Real Madrid vann spænska konungsbikarinn í 19. sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert