Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson lék allan tímann í vörn Krasnodar þegar liðið sigraði CSKA Moskva, 1:0 á útivelli í undanúrslitun rússnesku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.
Ragnar og félagar hans eru því komnir í bikarúrslit þar sem þeir mæta annað hvort Rostov eða Luch Vladivostok.