Brasilíski framherjinn Neymar sem leikur með Spánarmeisturum Barcelona verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Real Madrid í bikarúrslitaleiknum í gærkvöld.
Reiknað er með að Neymar verði frá keppni í fjórar vikur en Börsungar töpuðu í gær þriðja leik sínum í röð sem gerist ekki á hverjum degi hjá Katalóníuliðinu. Bakvörðurinn Jordi Alba kemur líka til með að missa af næstu leikjum Barcelona en hann þurfti að hætta leik eftir fyrri hálfleikinn í gær og reiknað er með því að hann verði frá keppni næstu þrjár til fjórar vikur.
Eini möguleiki Barcelona á titli þetta tímabilið er í deildinni en Barcelona er þar í þriðja sæti og er sex stigum á eftir Atlético Madrid sem trónir á toppnum