Reus sagður vilja fara til United

Marco Reus.
Marco Reus. AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Marco Reus einn af bestu leikmönnum þýska liðsins Borussia Dortmund vil ganga til liðs við Manchester United.

Þetta segir Mario Götze leikmaður Bayern München og fyrrum liðsfélagi Reus með Dortmund. Reus hefur verið sterklega orðaður við Manchester United síðustu mánuðina.

„Þegar ég var hjá Borussia þá vildi Marco fara til Manchester United og það hefur ekkert breyst,“ segir Götze í viðtali við þýska blaðið Bild í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert