Stórsigur hjá Hjálmari og samherjum hans

Hjálmar Jónsson í leik með Gautaborg.
Hjálmar Jónsson í leik með Gautaborg. Heimasíða Gautaborgar

Hjálmar Jónsson og samherjar hans í IFK Gautaborg unnu í kvöld stórsigur á Åvidaberg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Gautaborgarliðið fagnaði 5:0 sigri og lék Hjálmar síðustu 10 mínútur leiksins.

Arnór Smárason var í byrjunarliði Helsingborg sem tapaði fyrir Elfsborg á útivelli, 1:0. Arnóri var skipt útaf á 64. mínútu.

Halldór Orri Björnsson sat á varamannabekk nýliða Falkenberg allan tímann en lið hans tapaði fyrir Kalmar á heimavelli, 3:1.

Skúli Jón Friðgeirsson fékk ekkert að spreyta sig í liði Gefle í 3:0 sigri liðsins á móti Brommapokjarna. Kristinn Jónsson lék hins vegar allan tímann fyrir Brommapokjarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert