Bale gerði svipað mark gegn Íslandi (myndband)

Bale fagnar marki sínu gegn Barcelona.
Bale fagnar marki sínu gegn Barcelona. AFP

Markið sem Gareth Bale skoraði í leiknum á móti Barcelona þegar hann tryggði Real Madrid sigurinn í bikarkeppninni var ekki ósvipað og hann skoraði á móti Íslendingum í vináttuleik Wales og Íslands og í byrjun mars.

Í báðum tilfellum fór Bale framhjá varnarmanni og gerði það með því að fara út fyrir hliðarlínuna og stinga svo mótherjann af með hraða sínum. Mörkin tvo má sjá í myndböndunum hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert