Tekur Allegri við Tottenham í sumar?

Massimiliano Allegri.
Massimiliano Allegri. AFP

Massimiliano Allegri, fyrrum þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan, er í viðræðum við forráðamenn Tottenham um að taka við stjórastarfinu hjá Lundúnaliðinu í sumar að því er fram kemur í ítalska blaðinu Corriere dello Sport í dag.

Tim Sherwood var ráðinn stjóri Tottenham út leiktíðina eftir að André Villas-Boas var látinn taka poka sinn og nánast öruggt er að Sherwood verður ekki áfram með liðið á næstu leiktíð.

Allegri þjálfaði lið AC Milan frá 2010 til 2014 en honum var sagt upp í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert