Kolbeinn Sigþórsson og félagar hans í Ajax steinlágu fyrir Zwolle, 5:1, í úrslitaleik hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu sem fram fór í Rotterdam í dag.
Ajax fékk óskabyrjun þegar Ricardo van Rhijn skoraði á 3. mínútu en Zwolle fjögur mörk í fyrri hálfleik og bætti svo því fimmta við í seinni hálfleik. Kolbeinn lék allan tímann í framlínu Ajax.
Flestir reiknuðu með öruggum sigri Ajax enda eru Hollandsmeistararnir í efsta sæti deildarinnar og eru svo gott sem búnir að tryggja sér titilinn fjórða árið í röð. Zwolle er hins vegar í 9. sæti deildarinnar.