Mathieu til Barcelona

Jérémy Mathieu nýjasti liðsmaður Barcelona.
Jérémy Mathieu nýjasti liðsmaður Barcelona. Ljósmynd/Barcelona

Spænska knattspyrnuliðið Barcelona gekk í dag frá samningi við franska miðvörðinn Jérémy Mathieu frá Valencia. Mathieu er þítugur og hefur verið í herbúðum Valencia frá árinu 2009. Hann á að baki tvo landsleiki fyrir A-landslið Frakklands.

Talið er að Barcelona greiði 20 milljón evrur fyrir Frakkann sem lék 129 leiki fyrir Valencia og skoraði þrjú mörk á þeim fimm árum sem hann var þar.

Mathieu er fimmti leikmaðurinn sem Barcelona fær til liðs við sig í sumar. Áður hafði liðið samið við markverðina Marc-André ter Stegen og Claudio Bravo og framherjana Luis Suárez og Ivan Rakitic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert