Ráðist á ísraelska leikmenn - myndband

Mótmælendur veifuðu fána Palestínu.
Mótmælendur veifuðu fána Palestínu. AFP

Stöðva þurfti vináttuleik franska liðsins Lille og Maccabi Haifa frá Ísrael þegar liðin mættust í Salzburg í Austurríki í dag. Mótmælendur hlupu inn á völlinn og réðust að leikmönnum Maccabi með fána Palestínu í fararbroddi.

Sem kunnugt er ríkir ömurlegt ástand á Gaza þar sem harðir bardagar eiga sér stað á milli Ísraela og Palestínumanna og létu mótmælendur reiði sína bitna á leikmönnum ísraelska liðsins. Lögreglan segir að enginn hafi slasast í átökunum, en leikurinn var að lokum flautaður af á 85. mínútu þegar staðan var 2:0 fyrir Lille.

Atvikið má sjá á myndbandinu hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert