Falcao neitar orðrómi um Real

Radamel Falcao neitar því að fara á förum frá Mónakó.
Radamel Falcao neitar því að fara á förum frá Mónakó. AFP

Kólumbíski framherjinn Radamel Falcao hefur neitað því að hann sé á förum frá Mónakó í Frakklandi, en hann hefur mikið verið orðaður við spænska liðið Real Madrid.

James Rodrígez gekk til liðs við Real í vikunni frá Mónakó og orðrómur var um að Falcao myndi fylgja í sömu átt, mögulega á láni. Sjálfur hefur hann hins vegar neitað þessu.

„Ég er með samning við Mónakó og veit ekkert um tilboð frá öðrum liðum,“ sagði Falcao, sem er að koma til baka eftir meiðsli sem meðal annars héldu honum frá heimsmeistaramótinu í Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert