Pálmi Rafn tryggði Lilleström stig

Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Lilleström í dag.
Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Lilleström í dag. Ljósmynd/lsk.no

Pálmi Rafn Pálmason var hetja Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar hann jafnaði metin gegn Álasund á útivelli.

Álasund komst yfir í síðari hálfleik en Pálmi Rafn sem var í byrjunarliðinu að vanda jafnaði metin á 89. mínútu. Lilleström er í sjötta sætinu með 24 stig, fimmtán stigum á eftir toppliði Molde.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert