Fimmtánda deildarmark Viðars

Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt fimmtánda deildarmark í Noregi í …
Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt fimmtánda deildarmark í Noregi í kvöld. Ljósmynd/dagbladet.no

Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, eins og svo oft áður. Viðar skoraði annað mark Vålerenga í 3:2-sigri liðsins á Stabæk og kom Óslóarliðinu yfir 2:1 með markinu á 36. mínútu. Viðar lék allan leikinn í kvöld.

Viðar Örn hefur nú skorað 15 mörk í 17 leikjum í norsku úrvalsdeildinni og er langmarkahæsti leikmaður deildarinnar. Næstu menn á eftir hafa skorað 9 mörk.

Vålerenga komst upp í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með sigrinum í kvöld og hefur liðið 30 stig að loknum 17 umferðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert