Ashley Cole tekinn fyrir á Twitter

Ashley Cole með tilþrif í æfingaleik Roma gegn Manchester United …
Ashley Cole með tilþrif í æfingaleik Roma gegn Manchester United á dögunum. AFP

Enski bakvörðurinn Ashley Cole sem gekk til liðs við Roma á Ítalíu í sumar, er nýjasta grínið á samskiptavefnum Twitter um þessar mundir eftir að liðsmynd af ítalska liðinu birtist í netheimum.

Eins og sjá má á myndinni hér að neðan virðist Cole ekki alveg vera búinn að falla í hópinn þessar fyrstu vikur og stendur álengdar hinum í liðinu. Netverjar gripu það á lofti og hafa komið honum fyrir á hinum ýmsu myndum, nú síðast þar sem fyrrum eiginkona hans Cheryl Cole sést standa með sínum núverandi kærasta, en eins og frægt er var hjónaband þeirra Cole-hjóna ansi stormasamt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert