Eiður Smári Guðjohnsen tók þátt í æfingu hjá danska félaginu OB í morgun. Hann var þar á ferð þar sem sonur hans, Sveinn Aron Guðjohnsen, var að spila með U17 ára landsliði Íslands á svipuðum slóðum.
Danskir fjölmiðlar fjalla um þetta í morgun og velta því fyrir sér hvort þarna sé komin lausn á framherjavandræðum OB, en Eiður var með númerið 30 á bakinu á æfingunni. OB hefur hins vegar gefið það út að hann hafi einungis fengið að æfa með liðinu til að halda sér í standi á meðan hann var í för með syni sínum, og væri því ekki kominn til að leysa framherjakrísu liðsins.
OB er í botnsæti dönsku úrvalsdeildarinnar, án stiga eftir tvo leiki.