Gunnhildur Yrsa til botnliðsins í Noregi

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir varð bikarmeistari með Stjörnunni áður en hún …
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir varð bikarmeistari með Stjörnunni áður en hún hélt út í atvinnumennsku. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrrverandi fyrirliði Stjörnunnar, hefur skipt um félag í norsku úrvalsdeildinni en hún er farin frá Arna Björnar til Grand Bodö.

Gunnhildur Yrsa, sem er 25 ára, hefur verið hjá Arna Björnar síðustu tvö ár en sleit krossband í hné í fyrrasumar og var lengi frá keppni í kjölfarið.

Hún ætti að verða góður liðsstyrkur fyrir Grand sem er á botni úrvalsdeildarinnar með aðeins 1 stig úr 11 umferðum, en þó aðeins tveimur stigum á eftir næsta liði. Arna Björnar er í 4. sæti deildarinnar með 21 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert