Magnaður sigur hjá Pálma og félögum

Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn fyrir Lilleström.
Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn fyrir Lilleström. Ljósmynd/lsk.no

Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn fyrir Lilleström þegar hreint ótrúlegan sigur á Brann í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, 4:3. Brann var 3:2 yfir þegar venjulegum leiktíma var lokið.

Brann hafði misst mann af velli með rautt spjald á 81. mínútu og sóknarþungu heimamanna í Lilleström jókst í kjölfarið. Þeir náðu að jafna metin á fyrstu mínútu uppbótartíma og skoruðu svo sigurmarkið tveimur mínútum síðar.

Birkir Már Sævarsson sat allan leikinn á varamannabekk Brann.

Lilleström er nú með 27 stig í 6. sæti deildarinnar en Brann er í fallsæti með 12 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert