Arsenal gerði markalaust jafntefli við tyrkneska liðið Besiktas en liðin áttust við í fyrri leiknum i umspili um sæti í Meistaradeildinni í Tyrklandi í kvöld.
Arsenal var sterkari aðilinn og fékk nokkur góð færi í leiknum en leikmenn Lundúnaliðsins voru ekki á skotskónum að þessu sinni. Þegar um 10 mínútur voru eftir var velski landsliðsmaðurinn Aaron Ramsey rekinn af velli þegar hann fékk að líta sinn annað gula spjald.