„Hlustið á líkamann“

Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson. Ljósmynd/facebook.com

Matthías Vilhjálmsson leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Start verður að taka sér hvíld frá æfingum og keppni næstu vikurnar.

„Ótrúlega erfitt tímabil heldur áfram fyrir mig því nú er raunin sú að ég þarf að hvíla í einhvern tíma í fjórða skiptið í ár og missa af næstu leikjum líka. Hef aldrei náð að sýna mitt rétta andlit í ár og erfitt að ná ekki að vera 100% eins og ég hef verið öll mín seinustu ár.

En ég ætla að vera jákvæður og koma sterkari til baka í haust. Vildi bara koma þessu frá mér því ég veit að það eru margir sem þjösnast á líkamanum þangað til að það er um seinan. Þannig að hlustið á líkamann!,“ skrifar Matthías á facebook síðu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert