Hallgrímur til OB um áramótin

Hallgrímur Jónasson á ferðinni í leik með íslenska landsliðinu.
Hallgrímur Jónasson á ferðinni í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Golli

Hallgrímur Jónasson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur ákveðið að skipta um félag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann gengur í raðir OB um áramótin. Hann samdi til tveggja ára við félagið.

Hallgrímur hefur verið leikmaður SönderjyskE frá árinu 2011 en hann kom til Danmerkur frá GAIS í Svíþjóð.

Hjá OB hittir Hallgrímur fyrir samherja sinn úr landsliðinu, Ara Frey Skúlason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert