Brasilíski miðjumaðurinn Dodo sem fór á kostum með Inter Mílanó í fyrri leiknum gegn Stjörnunni í síðustu viku í 4. umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu og var víða valinn maður leiksins verður ekki með Inter í seinni leiknum á morgun.
La Gazetta dello Sport greinir frá því að Dodo verði þó orðinn klár í slaginn gegn Torino í ítölsku A-deildinni um helgina, en verði ekki með gegn Stjörnunni annað kvöld.