Kristinn með sjöunda markið sitt

Kristinn Steindórsson á ferðinni í leik með Halmstad.
Kristinn Steindórsson á ferðinni í leik með Halmstad. Ljósmynd/Gunnar Elíson

Kristinn Steindórsson skoraði fyrsta mark Halmstad í kvöld þegar liðið vann 4:1-sigur á Helsingborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Kristinn hefur þar með skorað sjö mörk fyrir Halmstad á tímabilinu og er markahæstur í liðinu ásamt Mikael Boman sem skoraði tvennu í kvöld.

Kristinn lék allan leikinn og Guðjón Baldvinsson kom inná sem varamaður hjá Halmstad á 75. mínútu.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir Helsingborg og Arnór Smárason fram á 66. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert